|
EVEN vinnur að þjóðarátaki um orkuskipti í samgöngum sem gerir rafbílavæðingu Íslands mögulega. Verkefnið er byggt upp með þátttöku lykil fyrirtækja og stofnana í samfélaginu, auk ríkis og sveitarfélaga.
|
|

|
Þessir aðilar sameinast um að stuðla að nýtingu raforku í samgöngum með beinni þátttöku í þjóðarátakinu, þjóðinni til heilla. Þátttakendur eru skilgreindir sem aðilar með samfélagslega ábyrgð. Með þátttöku í verkefninu senda þeir skýr skilaboð til samfélagsins, sinna birgja, samstarfsaðila og viðskiptavina um gildi þess fyrir þjóðfélagið að rafbílavæðing Íslands verði að veruleika.
Á þessari síður eru helstu skýringar á því hvers vegna fyrirtæki og stofnanir ættu að taka þátt í átakinu. Fjölmargar spurningar vakna þegar jafn viðamikið mál orkuskipti í samgöngum er á dagskrá. Ekki er hægt að gera tæmandi skil hér en kynningarfulltrúar þjóðarátaksins koma gjarnan og kynna verkefnið þannig að öllum hugsanlegum spurningum verði svarað.
