Samfélagsleg ábyrgð og þátttaka                                                                                                                      

Með þjóðarátaki er höfðað til stjórnenda fyrirtækja og stofnana um samfélagslega ábyrgð. Að þeir taki þátt í uppbyggingu á heildarkerfi sem gerir það mögulegt að nýta innlenda orku í samgöngum. Það felur í sér þátttöku í 5 ára ferli við uppbyggingu kerfisins. 
 

Það er mikilvægt fyrir þjóðina að standa saman og koma rafmagni í notkun í samgöngum

Þátttakendur ákveða aðkomu sína að verkefninu útfrá eigin forsendum, með því að:

taka virkan þátt í uppbyggingu hleðslukerfisins með því að kosta til og setja upp orkupósta við höfuðstöðvar sínar og útibú. Orkupóstarnir eru ætlaðir til notkunar fyrir viðskiptavini, starfsmenn og fyrir eigin rafbíla. Fjöldi slíkra orkupósta fer eftir umfangi starfseminnar, en uppsetningar-áætlun verður unnin af sérfræðingum þjóðarátaksins. Þegar slíkir orkupóstar hafa verið uppsettir og tengdir eru þeir hluti af heildarkerfi um land allt.

■ skipt út bílaflota sínum yfir í rafbíla að því marki sem mögulegt er, þannig að eðlilegum áætlunum um endurnýjun verði fylgt og ekki verði um íþyngjandi aðgerðir að ræða. Áætlun um bílaskipti á 5 árum verður útbúin sérstaklega í samráði við þátttökuaðila.


stuðla að fræðslu starfsfólks um mikilvægi þess að nýta innlenda orkugjafa og kosti rafbíla, sem og að bjóða starfsfólki í samvinnu við EVEN bæði orkupósta og rafbíla á bestu fáanlegum kjörum. Gerð verði fræðsluáætlun sem uppfærð væri reglulega á samningstímanum.

        
 



 

Hægt er að taka þátt í öllum þremur liðum eða einum einstökum allt eftir vilja og getu viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar. Með virkri þátttöku í verkefninu senda þátttakendur skýr skilaboð til samfélagsins, sinna birgja, samstarfsaðila og viðskiptavina um gildi þess fyrir þjóðfélagið að rafbílavæðing Íslands verði að veruleika.



Það eru skýr markmið sem aðstandendur þjóðarátaksins stefna að fyrir árslok 2012 en þau eru:

  • Að setja upp heilstætt kerfi orkupósta um land allt
  • Að tryggja nægjanlegt magn rafbíla til landsins
  • Stuðal að hugarfarsbreytingu hjá almenningi - næsti bíll verður rafbíll

Þetta þjóðarátak fellur vel að stefnu stjórnvalda um minnkun gróðurhúsalofttegunda og sjálfbærni í orkumálum og samgöngum. Þáttaka í þjóðarátaki um rafbílavæðingu Íslands útilokar ekki þátttöku í öðrum verkefnum sem stuðla að notkun innlendrar orku í samgöngum.

 
Tesla Model S, kemur á markað 2012, fer 480km á einni hleðslu, 5 manna með aukasæti fyrir 2.