Hvernig er kerfið uppbyggt ?                                                                                                                                 

EVEN mun setja upp heildstætt kerfi orkupósta fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir með aðgangs-, og öryggisstýringu.


Kerfið verður uppsett um land allt með auðveldu aðgengi allra rafbílanotenda, heima og að heiman.


Heimahleðsla
Talið er að um 80% allrar hleðslu fari fram í heimahöfn rafbílsins hvort heldur er hjá fyrirtækjum/stofnunum eða heimilum. Hvergi eru til hleðslumöguleikar í formi orkupósta fyrir rafbíla hér á landi svo byggja þarf kerfið frá grunni. Í boði verða nokkrar gerðir orkupósta, allt eftir óskum notenda og þeim möguleikum sem rafkerfið býður uppá á viðkomandi stað. Með slíkri heimahleðslu fæst einnig besta nýting raforkukerfisins þar sem hleðsla getur farið fram að stórum hluta að nóttu til þegar lítið álag er á raforkukerfinu.


Í boði verða margir möguleikar en hér er dæmi um slíkan orkupóst fyrir heimili.

Allir sem munu festa kaup á rafbíl þurfa orkupóst til að hlaða bílinn. EVEN mun bjóða fjölmargar gerðir orkupósta allt eftir þörfum. Þessir orkupóstar eru í eigu EVEN og eru með GSM korti og orkumæli auk tölvubúnaðar fyrir aðgangs-, og þjónustustýringu.



Almennir orkupóstar
Talið er nauðsynlegt í byrjun að setja upp á sem flestum stöðum orkupósta fyrir rafbílanotendur. Þetta er gert í tvennum tilgangi, í fyrsta lagi til að hlaða bíla hvar sem er og hvenær sem er þar sem notendur nálgast orku fyrir bílinn á annan máta en fyrir hefðbundna bíla. Við sækjum ekki orkuna alla á einum stað þegar rafhlaðan er tóm heldur eins víða og kostur er. Að auki eru margir kostir við að tengja bílinn yfir daginn og mætti nefna þægindin við að halda honum heitum yfir veturinn svo dæmi sé tekið. Í öðru lagi þá er talið nauðsynlegt að hafa sýnilega pósta mjög víða og með góðu aðgengi til að tiltrú almennings vaxi hratt á rafbílum og vilji verði til að skipta yfir. Fjöldi slíkra pósta verður að hluta til meiri en möguleg þörf er en það jafnast síðan út með fjölgun rafbíla.

Hraðhleðsla
Settar verða upp hraðhleðslustöðvar á fjölmörgum stöðum um land allt og á höfuðborgarsvæðinu. Þessar stöðvar eru ætlaðar fyrir þá sem eru að ferðast lengri vegalengdir sem og fyrir þá sem þurfa hraða hleðslu eða ef gleymst hefur að hlaða. Ekki er mælt með því að slíkar hleðslustöðvar verði notaðar til daglegrar hleðslu þar sem það fer verr með rafhlöðurnar og getur haft áhrif á lífslengd og ábyrgðartíma rafhlaðanna

Áskrift
Til að halda utanum kerfið og reka er nauðsynlegt að hafa áskriftarkerfi þar sem notendur velja þá þjónustupakka sem hentar þeim og það er notað til aðgangsstýringar og hleðslustjórnunar. Slíkir pakkar veita aðgengi að öllum orkupóstum og hraðhleðslu um land allt og fer val notenda eftir því hvað þeir keyra mikið og þurfa mikla orku. Slík þjónusta erður kynnt á síðari stigum.

Allir EVEN hleðslustöðvar eru með aðgangsstýringu til að tryggja öryggi og rétt aðgengi.