Að mati sérfræðinga er nauðsynlegt að skapa eitt heildstætt kerfi fyrir innleiðingu rafbíla og skiptir ekki máli hvort það á að gerast hér á landi eða annarstaðar.
Undanfarin tvö og hálft ár hafa aðstandendur þjóðarátaksins um rafbílavæðingu Íslands verið í sambandi við fjölmarga aðila víða um heim um stefnumótun, val á búnaði, tæknilausnir og innleiðingu. Má í því sambandi nefna greiningarfyrirtækið Frost & Sullivan sem hefur sérhæft sig í bílaiðnaðaðinum og er mjög stór ráðgjafir á þessu sviði. Eftir fjögurra ára rannsóknir kynnti F&S niðurstöður sínar í nóvember 2009, um þær leiðir sem taldar eru skynsamlegastar við innleiðingu rafbíla og orkuskiptum í samgöngum. Lykillinn að því að slíkt heppnist að mati F&S er að einn aðili taki að sér hlutverk umsjónaraðila og leiði alla þá sem skipta máli að sama borði. EVEN er skilgreindur sem slíkur umsjónaraðili.

Þjóðarátakið er vettvangur til að fá alla að borðinu sem skipta máli við uppbyggingu á heilstæðu kerfi orkupósta og hraðhleðslustöðva sem sett verður upp um land allt. Auk þess er innflutningur á rafbílum hafin til að opna markaðinn.
Þjóðarátak um rafbílavæðingu Íslands er liður í að láta þetta verða að veruleika og er biðlað til lykil fyrirtækja og stofnana um land allt til að ryðja brautina og gera uppbygginguna mögulega.

Skýr aðgerðaráætlun í þremur skrefum hefur verið gerð