Þó svo að sérfræðingar séu sammála um tækni og hvernig skynsamlegast sé að byggja upp slíka rafbílavæðingu þá hefur verið erfiðara að finna út hvernig á að standa straum af kostnaði. Óskastaða á hverjum stað væri ef stjórnvöld kostuðu slíka uppbyggingu eða eitthvert opinbert fyrirtæki, en um það er ekki að ræða hér á landi. Þess vegna eru farnar aðrar leiðir til að láta þetta verða að veruleika hér á landi. Lausnin er að leita til fyrirtækja og stofnana um að standa saman að þessari uppbyggingu þannig að hún geti orðið að veruleika. Með því að fá fjölmarga til að leggja sitt að mörkum þá verður á fimm árum möguleiki til að byggja upp slíkt heildarkerfi og á þeim tíma eru allir helstu bílaframleiðendur að koma með sína rafbíla á markað.

Heildarkerfi fyrir allt landið.
|
Orkupóstar sem víðast
Talið er nauðsynlegt að setja orkupósta fyrir rafbíla upp sem víðast. Hjá stofnunum, verslunar- og þjónustu-fyrirtækjum og á öðrum þeim stöðum sem almenningur sækir þjónustu. Því er mikilvægt að allir verði með í uppbyggingunni og biðlum við til þjóðarinnar varðandi þátttöku í þjóðarátakinu.
Flækjustig
Víða erlendis hafa verslunarklasar stigið fram og viljað sýna gott fordæmi með því að setja upp aðgangsstýrða orkupósta, staðsett þá á sýnilegum stöðum við innganga og jafnvel greitt fyrir rafmagnið. Aðgengið að slíkum póstum þarf að vera með þeim hætti að auðvelt sé fyrir notandann. Svo hafa komið í ljós allskonar annmarkar á aðgengi, neytendur hafa þurft að vera með margskonar aðgangskort, sumir skiptast á að versla í mörgum klösum og flækjustigið er gífurlegt.
Eitt heildarkerfi
Með því að byggja upp eitt heildarkerfi með auðveldu aðgengi fyrir alla þá er allt slíkt flækjustig úr sögunni. Eigendur og eða rekstraraðilar þjónustufyrirtækja þurfa ekki að hafa áhyggjur af kröfu rafbílaeigenda um að til séu stæði fyrir þá með tenglum heldur geta vísað á heildarkerfið. Ef orkupóstur bilar, er eyðilagður eða eyðileggur rafbílinn þá er það á ábyrgð rekstraraðila kerfisins en ekki þátttökuaðila.
|
|
 |