Rafbílavæðing                                                                                                                                                        

Rafbílavæðing er nýtt hugtak sem hefur verið að festast í sessi víða um heim en skilgreiningin hugtaksins er á reiki. Hvað felst í því að rafbílavæða bæ, borg eða jafnvel heilt land.  Hverjir eru þeir sem taka þátt í slíku ferli, hvað gera þeir og hvernig.

Unnið hefur verið með erlendum sérfræðingum að skilgreiningu á hvað rafbílavæðing  felur í sér og skilgreiningu á þeim samþættingaraðila sem fær alla þá sem skipta máli við innleiðingu rafmagns í samgöngur að sama borði.


Til að gefa örlitla mynd af þeirri skilgreiningu mætti nefna helstu atriði s.s.:
  • uppbygging kerfis rafhleðslupósta og hraðhleðslustöðva ásamt uppbyggingu öryggis-, og þjónustukerfis fyrir rafbílanotendur
  • sala á þjónustu til rafbílaeigenda og samþætting við orkufyrirtæki
  • stuðla að breytingum á núverandi bílaflota í rafbíla
  • að mynda eðlilegan eftirmarkað með rafbíla
  • endurvinnsla á íhlutum rafbíla s.s. rafhlöðum
  • fræðslu um gildi rafbílavæðingar og helstu þætti
  • breytingu á lögum og reglugerðum fyrir rafbílavæðingu
  • endurskilgreining og framkvæmd menntunar á sviði samgöngutækja

 

 

Nánari upplýsingar munu birtast hér á heimasíðu NLE sem og á heimasíðu verkefnisins sem opnar fljótlega og verður vettvangur fyrir rafbílavæðingu Íslands.