Verkefnið Vox Naturae snýst um að ná athygli heimsins, fá jákvæða umfjöllun erlendra fjölmiðla og draga að þúsundir ferðamanna til landsins. Að vekja áhuga umheimsins á Íslandi sem náttúruperlu í mótun mitt í Atlandshafinu og hvetja hann til aðgerða gegn hlýnun jarðar.
|
Verkefnið Vox Naturae er stórkostleg ljósasýning þar sem jökull er lýstur upp á einstakan hátt af hinum heimsþekkta listamanni Gert Hof. Samhliða þessu er íslensk tónlist sem byggir á hljóðum bráðnandi jökla frumflutt. Verkið dregur fram áhrif hlýnunar jarðar með hætti sem aldrei hefur verið gert áður.
Gert Hof kom til landsins í lok maí til að skoða aðstæður og skoða mögulega jökla til að nota í sýninguna.
|
|
 |
Voru Snæfellsjökull, Svínafellsjökull sem er skriðjökull sem fellur úr Vatnajökli og Gígjökull í Eyjafjallajökli skoðaðir sem mögulegir staðir. Endanleg ákvörðun um val á jökli verður tekin fljótlega.
Framkvæmd verksins
Vox Naturae mun sjá um framkvæmd verksins. Að baki fyrirtækinu standa, Páll Ásgeir Davíðsson sérfræðingur í samfélagsábyrgð, Bergljót Arnalds tónskáld og Northern Lights Energy (NLE). Páll og Bergljót eru hugmyndasmiðir verksins. Þetta verkefni er eitt af þeim samfélagsverkefnum sem NLE kemur að en fyrirtækið einbeitir sér að verkefnum sem hafa samfélagslega þýðingu.
Ráðgjafaráð
Slíkur viðburður krefst mikillar skipulagningar og útsjónasemi auk þess sem mjög margir aðilar þurfa að koma að. Til að nýta þá miklu reynslu sem hefur skapast hér á landi í kringum stóra viðburði hefur verið ákveðið að fá til liðs við verkefnið reynslubolta frá ólíkum aðilum innan ferðaþjónustunnar og stjórnsýslunnar.
Ráðið er skipað valinkunnu fólki frá m.a. Samtökum ferðaþjónustunnar, Íslandsstofu og Icelandair.
Gert Hof
Gert Hof er einn þekktasti ljósalistamaður heims. Hann hefur sett upp risavaxnar ljósasýningar sem m.a. hafa lýst upp Rauða torgið í Moskvu, hina sögufrægu Akrópólis og hluta Dóná. Sýningar hans draga að hundruði þúsunda gesta, fá umfjöllun allra helstu fjölmiðla heims og eru sýndar í sjónvarpi fyrir milljónum áhorfenda á sjónvarpsstöðvum eins og CNN, BBC og Sky News.
|
Gert Hof er um margt sérstæður listamaður, elskar allt svart og gengur alltaf í svörtu, elskar einnig þýska ljóðagerð, Formúlu 1 keppnina, brjálaðar týpur og góðar kökur. Það er altalað meðal hans vina að með góðri köku sé hægt að bræða kallinn eins og smjör á pönnu.
Gert Hof hefur á ferli sínum unnið með ótalmörgum mjög ólíkum heimsþekktum tónlistarmönnum og mætti nefna Mikis Theodorakis, Mike Oldfield, Ruslana, Nina Hagen, Buena Vista Social Club, Bruce Springsteen, Roger Waters og Rammstein.
Reyndar er Gert Hof hluti af hljómsveitinni Rammstein, eins og skuggi fylgir ljósi.
Upplýsingar um Gert Hof er að finna á www.gert-hof.de
|
|

Höfnin í Oman / afmælishátíð
|
Nánari lýsing á verkefninu
Gert Hof setur upp magnþrungna sýningu sem gengur út á að lýsa upp íslenskan jökul sem er að hverfa af yfirborði jarðar (talið er líklegt að jöklar hér á landi munu hverfa á næstu 200 árum vegna hlýnunar jarðar). Undir ljósasýningunni verður frumflutt íslensk tónlist sem Bergljót Arnalds mun hafa umsjón með. Hugmyndin var að nýta hljóð úr íslenskum jöklum sem heyrast þegar þeir hreyfast, bresta og bráðna. Ljósasýning Gert Hof og íslensk tónlist munu gefa náttúrunni rödd með skilaboðum sem munu skiljast um allan heim – jökullinn kveður.
Um er að ræða atburð á heimsmælikvarða þar sem áhersla er lögð á íslenska náttúru og menningu. Þetta yrði fyrsta sýning sinnar tegundar þar sem jökli er breytt í listaverk og hann sýndur ásamt tónlist unninni úr hljóðum náttúrunnar. Auk listræns gildis felur sýningin í sér mikilvæg skilaboð fyrir heiminn allan þar sem áhrifin af hlýnun jarðar hafa aldrei verið dregin fram með sambærilegum hætti.
|

Rauðatorgið í Moskvu / þúsaldarhátíð
|
Sýningar Gert Hof vekja gríðarlega athygli og hafa allar helstu sjónvarpsstöðvar heims mætt og allt að því 1,7 milljarður manna horft á einstakan atburð. Gera má ráð fyrir slíku áhorfi á ljósasýningu sem haldin er á jökli í landi sem hefur fengið jafn mikla umfjöllun af eldgosi og raun ber vitni.
Markmið Vox Naturae:
-
Að Ísland nái augum heimsins með jákvæðum og áhugaverðum skilaboðum
-
Að sýna einstaka náttúru og menningu landsins fyrir milljónum áhorfenda þar sem fram kemur að Ísland og íslensk náttúra er stöðugt að störfum við að skapa stórfengleg listaverk
-
Að afla gjaldeyristekna og auka straum erlendra ferðamanna til landsins
- Að leggja brýnum alþjóðlegum málstað lið með áhrifamiklum hætti
Tímarammi
Stefnt er að því að setja upp sýninguna haustið 2011 eða 2012 en ákvarðanir um það verður tekið síðar.
Hverjir njóta góðs af sýningunni ?
Ferðamannaiðnaðurinn og ímynd landsins:
Sýningin mun draga að þúsundir gesta og er þannig bein innspýting í ferðamannaiðnaðinn. Má til samanburðar nefna að 350.000 gestir mættu á sýningu Gert Hof í Hamborg. Tekjur borgarinnar vegna gistingar, matarsölu, sölu á vörum o.þ.h. nam mörgum milljörðum króna yfir eina helgi. Þar sem stefnt er að því að halda sýninguna í haust þá munu ferðamennirnir koma á tíma þegar almennt er minna um ferðamenn.
Sú mikla fjölmiðlaumfjöllun sem Ísland fær vegna sýningarinnar mun kynna landið með einstaklega jákvæðum og áhugaverðum hætti. Með sýningunni skapast tækifæri til að bjóða til landsins frægum einstaklingum svo sem leiðtogum og listamönnum. Fjölmiðlar munu fjalla ítarlega um dvöl þeirra hér á landi og er ekki til betri leið til að sýna að það sé óhætt og áhugavert að heimsækja Ísland. Þá munu fjölmiðlar vilja fjalla um landið og þessa áhugaverðu þjóð sem brást við gosi undir jökli með því að breyta jökli í listaverk.
|

Gert Hof og Asteris Koutoulas aðstoðarmaður hans í öskuskýi á Sólheimasandi 26.05.2010
|