| Skyndibílar er ný tegund bílaleigu hér á landi sem gengur út á að
viðskiptavinir kaupa sér áskrift að bílunum sem allir verða rafbílar.
Þjónusta Skyndibíla verður skipt upp fyrir tvo megin markhópa,
annarsvegar einstaklinga og hinsvegar fyrirtæki og stofnanir.
Mismunandi áhersla verður á þessari þjónustu en allir viðskiptavinir
eru áskriftarmeðlimir. Skyndibílar staðsetur þjónustubíla sína mjög
víða og í samstarfi við eigendur bílastæða. Ætlunin er að þróa og
útfæra þjónustu Skyndibíla hér á landi með það í huga að hægt sé að
selja þá þjónustu á erlendum mörkuðum. |
|
|
Þjónusta með „skyndibíla“ hefur verið rekin í Bandaríkjunum í tæpan áratug en upprunalega hugmyndin kom frá Evrópu. Skyndibílar er bílaleiga þar sem viðskiptavinir kaupa sér áskrift (félagsskírteini) sem síðan veitir viðskiptavinum aðgang að bílum í stuttan eða langan tíma (lámarkstími er 1 klst.). Ekki þarf að gera annað en hringja inn og gefa upp félagsnúmer eða panta á netinu og þá er bíllinn tilbúinn. Öllum bílum er skilað í sama stæði og hann er tekinn úr. Með þessu móti opnast sá möguleiki að „þurfa ekki að eiga bíl“. Þannig geta mun fleiri notað bílana og í raun er frekar hægt að segja að um sé að ræða samnýtingu bílsins (car sharing). Þetta er vinsælt hjá háskólum, fyrir almenning í miðbæjum og fyrir stofnanir og fyrirtæki.
Þessi þjónusta fellur algerlega að hugmyndum Ríkisstjórnar Íslands um vistvænar samgöngur því rafbílar eru hljóðlátir og hafa ekki mengandi útblástur.
Skyndibílar fyrir einstaklinga
Skyndibílar fyrir einstaklinga er þannig uppbyggt að einstaklingur gerist meðlimur Skyndibíla með árs áskrift. Með áskrift er viðkomandi skilgreindur í tölvukerfi Skyndibíla og einnig eru nauðsynleg öryggisatriði skráð. Þar mætti nefna grunnatriði s.s. nafn, kennitala, hvort ökuskírteini er í gildi og trygging viðkomandi aðila. Hægt er að skrá sig sem meðlim á netinu, en allar upplýsingar þarf að staðfesta í eigin persónu við endanlega skráningu sem gerð er á skrifstofu Skyndibíla.
Skyndibílar fyrir fyrirtæki og stofnanir
Skyndibílar fyrir fyrirtæki og stofnanir er þannig uppbyggt, að fyrirtæki eða stofnun gerir ásriftarsamning við Skyndibíla. Slíkur samningur gildir að lámarki til eins árs í senn. Með áskrift er viðkomandi fyrirtæki eða stofnun skilgreind í tölvukerfi Skyndibíla þannig að starfmenn þess hafi aðgang að þeirri þjónustu Skyndibíla sem tilgreind er í samningnum. Fyrirtæki eða stofnun skal leggja fram tryggingu sem er í samræmi við þann fjölda starfsmanna sem nota skal þjónustuna. Allir starfmenn sem nota þjónustuna verða einnig skráðir sérstaklega og fá samskonar Skyndikort og einstaklingar, en kortin eru skráð á viðkomandi fyrirtæki eða stofnun.
Flotastýring
Fyrirtækjum og stofnunum verður boðið upp á flotastýringu, þ.e. allar þær upplýsingar sem hægt er að fá í tölvukerfi Skyndibíla skulu meðhöndlaðar þannig, að fyrirtæki geti notað þær sem flotastýringu. Slík flotastýring er vel þekkt og skilgreind miðað við þarfir hvers fyrirtækis. Skyndibílar munu hafa starfsmenn sem halda utanum flotastýringu fyrir viðskiptavini sína sé þess óskað. Þannig geta fyrirtæki eða stofnanir haft aðgang að mikilvægum upplýsingum um nýtingu án þess að halda úti eigin starfsmanni við þá úttekt.
Gert er ráð fyrir að Skyndibílar hefji rekstur á vormánuðum 2011 en nánari upplýsingar um Skyndibíla verður hægt að fá á væntanlegum vef fyrirtækisins og hjá Sighvati Lárussyni í síma 490 9000 eða 864 4615 eða á netfanginu
sighvatur@nle.is