Ímyndið ykkur árið
2035: Hvernig mun fólk ferðast frá einum stað til annars? Þá er áætlað að þrír milljarðar bíla verði í notkun á jörðinni. Umtalsverð fjölgun í ljósi þeirra rúmlega 800 milljón bíla sem eru á götunum um allan heim í dag. Stjórnvöld um allan heim eru að horfast í augu við gríðarleg áhrif af völdum samgangna í formi mengunar, umferðaröngþveitis og orkuþarfar. Því verður að velja samgöngutæki í samræmi við þá miklu fjölgun sem gert er ráð fyrir á komandi árum.
Eitt af því sem einkennir þróun búsetu á síðustu öld og byrjun þessarar aldar er samþjöppun í borgarsamfélög. Í fyrsta skiptið í sögu mannkyns búa fleiri í borgum en í strjálbýli. Þetta leiðir af sér breytta hegðun fólks og hluti þess er eignarhald samgöngutækja, val á orku fyrir samgöngur og nálgun. Þróunin er ör og fjöldamörg atriði sem hafa verið að breytast og munu breytast í náinni framtíð. Dæmi mætti nefna:
- Talið er að eignarhald bíla mun breytast mjög mikið og sjálfsagt mál verður að deila samgöngutækjum með öðrum. Fast eignarhald bíla verður einungis partur af heildarmyndinni, gagnstætt því sem það er í dag. Að vera áskrifandi að bíl ásamt kannski 30-40 öðrum einstaklingum verður talið sjálfsagður hlutur innan fárra ára. Þegar eru fjöldi fyrirtækja bæði vestanhafs og austan sem bjóða slíka þjónustu.
- Að leigja aðgang að tveimur jafnvel þremur mismunandi samgöngutækjum í einum pakka á ársgrundvelli eða jafnvel með langtímaleigu í huga verður einnig sjálfsagður hlutur. Þá áttu aðgang að vespu, smábíl og jeppa, allt eftir því hvað þér hentar hverju sinni og þú greiðir eftir notkun en þú getur nálgast tækin á örfáum mínútum því þau eru í næsta nágrenni við þig.
- Að leigja bíl á árs grundvelli með öllu inniföldu s.s. orku, viðhaldi, tryggingum, bílastæði og annarri þjónustu fyrir fast gjald á mánuði verður einnig sjálfsagður hlutur.
- Nálgun á orku mun einnig breytast mikið og verður talið sjálfsagður hlutur að þú hafir aðgang að henni um allt en ekki bara á sérstökum orkustöðvum. Hvers vega að eyða umtalsverðri orku til að koma sér á orkustöð? Þegar hægt er að dreifa henni á einfaldan hátt um allt án verulegs auka kostnaðar.
Þetta er framtíðarsýn NLE og hefur fyrirtækið í hyggju að byggja upp vöru og þjónustu í samræmi við það. Fyrsta skrefið í breyttu eignarhaldi bíla hér á landi er þjónusta Skyndibíla sem hefja mun starfsemi á árinu 2011.