Í Noregi
Northern Lights Energy mun hefja starfsemi í Noregi í sumar. Stofnað verður félagið NLE Norge A/S sem mun annast  sölu þeirra rafbíla sem fyrirtækið hefur samið um sölu á við rafbílaframleiðendur víða um heim. Í Noregi er mikið gert til að koma rafbílum á göturnar og frjór jarðvegur til að hefja sölu rafbíla.