|
Northern Lights Energy hefur náð samkomulagi við Indverska fyrirtækið Mahindra REVA um sölu og markaðssetningu REVA rafbíla í Færeyjum. Ætlunin er að opna söluskrifstofu í Færeyjum á vormánuðum 2012 og hefja sölu á nýja REVA NXR rafbílnum.
Mahindra REVA hefur á undanförnum árum selt rafbíla í 26 löndum og er hægt að skoða fyrri framleiðslu og komandi bíla á heimasíðu fyrirtækisins www.revaindia.com.
|
|

REVA NXR
|

REVA NXG er 2ja manna rafsportbíll og kemur á markað í Færeyjum árið 2013.
Þeir sem óska eftir upplýsingum um sölu Mahindra REVA í Færeyjum geta sent fyrirspurn
hér, eða hringið í síma 490 9000.