TESLA MOTORS performance with a clean conscience
Tesla Motors er eitt þekktasta vörumerkið í rafbílaheiminum í dag. Tesla í Silicondalnum í Kaliforníu braut sannarlega blað þegar fyrirtækið kom árið 2006 fram með Tesla Roadster, rafknúna tveggja manna sportbílinn sem byggður er á Lotus Elise. Þarna var allt í einu kominn rafbíll sem var ólíkur öllum þeim sem fram til þess tíma höfðu komið fram, rafbíll með alla aksturseiginleika í hæsta flokki, fegurð og kraft og getu eins og best gerist.  Helstu bílaframleiðendur heimsins gerðu sér grein fyrir að loksins var langþráður draumur að rætast um rafbíl sem hefur fulla getu, fegurð og snerpu sem stenst allt sem hefðbundnir bílar hafa.  Framhaldið er þekkt, öll helstu bílafyrirtæki heims hafa tilkynnt að þau muni koma með rafbíla á markað ef þau eru ekki þegar kominn með hann á götuna.  Tesla Motors ruddi brautina sem fjölmörg önnur fyrirtæki höfðu verið á en ekki tekist að fóta sig á. Um mitt ár 2012 hóf Tesla Motors framleiðslu á Tesla Módel S sem er fjölskyldubíl, hannaður af Franz von Holzhausen sem þar til hann kom til Tesla var aðalhönnuður Mazda. Þetta er glæsilegur rafbíll og vart hægt að segja að fallegir og stílhreinni bíl sé hægt að fá. Tesla Model S er með sætum fyrir fimm fullorðna og tvö börn. Hefur allt að 480 kílómetra drægni á einni rafhleðslu, nær hundraðinu úr kyrrstöðu á innan við sex sekúndum.     Þó að bíllinn komi fyrst til afgreiðslu í júlí 2013 er þegar tekið á móti pöntunum og það er hægt að gera hér. Nánari upplýsingar er hægt að fá á www.tesla.is eða í síma 898 1100.