TAZZARI ZERO

Tazzari ZERO er framleiddur af Tazzari Group, einni af stóru iðnaðarsamsteypunum á Ítalíu sem sérhæfir sig í úrvinnslu á áli. ZERO er framleiddur í Imola, hjarta bílaiðnaðarins á Ítalíu og ber útlitið með sér sem snaggaralegur Ítali.

Tazzari ZERO er einfaldlega - Töff – eins og Ítalinn gerir svo vel, hann hreinlega stinkar af töffaraskap og það þarf ekki mörg orð um það sem allir sjá.

Tazzari ZERO er rafbíll með frábæra aksturseiginleika, situr eins og formúlabíll í akstri, snarpur borgarbíll með 140km drægni á einni hleðslu og hefur marga hleðslu möguleika, m.a. er hægt er að ná 80% hleðslu á innan við 50 mínútum. 

Stofnanir og fyrirtæki geta óskað eftir aðstoð við rafbílavæðingu sem innifelur þarfagreiningu og gerð tímaáætlunar samhliða vali á rafbílum. Sendið fyrirspurn hér., eða hringið í síma 490 9000 - 864 4615.




     
 
 
 
 
 
 
 

 
 
 

Staðalbúnaður                                                  
 • Nýjasta tækni í Liþíum rafhlöðum
• Innbyggður 220V hleðslubúnaður
• LED afturljós og auka LED hemlaljós
• Hliðarspeglar: samlitir, rafstýrðir, með LED ljósum
• Tvö hólf fyrir farangur, 180 lítrar
• Rafdrifnar rúður
• Samlæsing
• Þokuljós að aftan
• Samlitir stuðarar
• Leðurstýri 32 cm
• Geisla/MP3 spilari og USB og iPod tengi
• 15'' álfelgur
• 6 pastel litir í boði að utan (af 12 lita skala)
• Færanlega leðursæti
• GSM og iPhone hleðslusökklar
• 4 diskabremsur
• Rafstýrð hemlaorkutækni
• Rafmagns miðstöð
• 4 notkunar möguleikar með mismunandi aksturs eigin- 
  leikum
   Aukahlutir                                               
• Sérvalið lakk (RAL litir)
• Háglans hvítar felgur
• Mattar svartar felgur
• Sólþak
• Leðursæti - sand
• Létt sport sæti
• Viðvörunarkerfi
   (Sjálfvirk glugglokun og sírena)
• Bakkskynjarar
• Upphituð afturrúða
• Auka miðstöð
• 220V 3-hraða breytanlegt hleðslutæki
• Hraðhleðslubúnaður (kit - innbyggt)
• 380V 3fasa Hraðhleðsla (kit verður að vera innbyggt)
• Auka rafhlöðuábyrgð til 12 mánaða
  (2 ára samanlögð ábyrgð)
• Vetrardekk
• DELUXE Pakki