Mahindra REVA

Northern Lights Energy hefur náð samkomulagi við Indverska fyrirtækið Mahindra REVA um sölu og markaðssetningu REVA rafbíla á Íslandi og í Færeyjum. REVA hefur kynnt tvö ný módel rafbíla sem koma munu á markað annarsvegar REVA NXR árið 2011 og hinsvegar REVA NXG árið 2012.  

Á komandi árum er stefnt að því að REVA setja á markað eitt nýtt módel á ári  og er næsta módel lítill tveggja manna sportbíll, REVA NXG. 

      

NLE mun hefja sölu og markaðssetningu á nýja rafbílnum frá REVA NXG á næsta ári og fá viðskiptavinir fyrstu bílana afhenta í byrjun árs 2012 en þeir verða líklega þeir fyrstu sem Mahindra REVA afhendir í Evrópu.

Mahindra REVA hefur á undanförnum árum selt rafbíla í 26 löndum og er hægt að skoða fyrri framleiðslu og komandi bíla á heimasíðu fyrirtækisins www.revaindia.com.


REVA NXR er flottur borgarbíll sem kemur á markað á Íslandi á haustmánuðum 2011.

Stofnanir og fyrirtæki geta óskað eftir aðstoð við rafbílavæðingu sem innifelur þarfagreiningu og gerð tímaáætlunar samhliða vali á rafbílum. Sendið fyrirspurn hér, eða hringið í síma 490 9000.