Phoenix rafbílar
Northern Lights Energy hefur samið við Phoenix Motorcars í Bandaríkjunum um sölu á þeirra rafbílum í allri Evrópu. Fyrstu bílarnir verða kynntir í Noregi í sumar. Það er glæsilegur aldrifs fjögurra manna pallbíll sem eingöngu er knúinn rafmagni. Hér að neðan eru upplýsingar um þetta fyrsta módel, Sport Utility Truck (SUT) frá Phoenix Motorcars en fljótlega verða opnaðar sérstakar vefsíður fyrir bæði Ísland og Noreg.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 490 9000 eða á netfanginu nle@nle.is

                   
Phoenix SUT pallbílar eru upplagðir fyrir fyrirtæki og stofnanir sem þurfa á öflugum vinnubíl til daglegrar notkunar. Bíllinn er einnig upplagður fyrir sveitarfélög. Samkvæmt rannsóknum bæði hér á landi og í Noregi eru flestir vinnubílar hjá sveitarfélögum einungis keyrðir innan við 100km á degi hverjum. Pallbíllinn frá Phoenix getur auðveldlega þjónað flestum þörfum þessara sveitarfélaga sem og flestra fyrirtækja.

Tækniatriði:
Hámarkshraði - 130km
Hröðun - 14sek. í 100km klst.
Drægni á einni hleðslu - allt að 160km
Hleðslutækið er 7kW og tekur 5-6klst. að hlaða á 230V 30A
Hraðhleðsla - 1 klst. full hleðsla
Drifbúnaður - fjórhjóladrif
Rafmótor - Dual AC Induction
Afl - 120kW toppálag / 60kW samfellt - 160 hestöfl
Tork - 560Nm toppálag / 260Nm samfellt
Mótorkæling - vökvadrifin
Hitastýring - vökvadrifin

Nánar um tækniatriði Phoenix SUT  hér.

Listi yfir helstu atriði sem eru til þæginda fyrir ökumenn og farþega.

Rafdrifin hurðaloka
Rafdrifin hurðarloki á fremri farþegahurð er til þæginda.

Tengill fyrir hleðslu
Tengill fyrir hleðslu er til þæginda meðan á akstri stendur.

Sjálfvirkt öryggi í rafdrifnum rúðum
Ef fyrirstaða er þegar rúðu er lokað stoppar hú sjálfvirkt öryggisins vegna.

Bremsuviðvörun
Ef ökumaður ekur af stað með handbremsu á heyrist viðvörunarhljóð og ljós kviknar í mælaborði.

Rafhlöðustýring
Ef gleymist að slökkva á ljósum eða miðstöð þegar bíllinn er yfirgefin þá slökknar á því sjálfkrafa.

Flöskuhaldari
Flöskuhaldari tryggir að ekki hellist niður í akstri.

Rúmgott hanskahólf
Rúmgott hanskahólf er fyrir framan farþegasætið.

Stjórnhnappar fyrir útvarp í stýri
Hægt er að stjórna útvarpinu með hnöppum í stýrinu til að tryggja öryggi í akstri.

Sólhlíf fyrir ökumann og blaðastandur
Þægileg sólhlíf er fyrir framsætin og góður blaðastandur til að geyma laus blöð.

Geymslurými í hurðum
Góð geymslurými er í hurðum til að geyma blöð og aðra hluti.

Geymslupokar á sætisbökum
Þægilegir og rúmgóðir geymslupokar eru á sætisbökum.

Geymslurými fyrir bóna og þvottagræjur
Fullt af plássi fyrir bón og þvottagræjur og auðvelt að nálgast þær.


Nánar um Phoenix Motorcars hér