CHEVROLET EQUINOX FRÁ AMP ELECTRIC VEHICLES
Hafinn er innflutningur á rafbílnum CHEVROLET EQUINOX frá  AMP Electric Vehicles. AMP hefur á undanförnum árum þróað drifbúnað fyrir rafbíla og er EQUINOX einn af þeim.

Pantanir og nánari upplýsingar í síma 490 9000 eða nle@nle.is



EINN MEÐ ÖLLU

  • 100% rafknúinn 5 manna borgarjeppi
  • Fer auðveldlega 200 km á hverri hleðslu, en drægni er allt að 240 km
  • Nær 100 km hraða á innan við 7 sekúndum
  • Hámarkshraði læstur í 150 km/klst
  • Hægt að hlaða með venjulegri 230 volta innstungu
  • Engin útblástursmengun 
  • Hljóðlátur

Bíllinn er knúinn tveimur Remy Inc. 164 kW rafmótorum sem saman skila um 220 hestöflum og 320 Nm af torki.

Engin gírskipting er í bílnum, einungis einn gír áfram og einn afturábak.

37 kWh Lithium Iron Phosphate (LiFePO4) rafhlöðupakki er í bílnum, sem skilar honum allt að 240 km á hverri hleðslu. Ef rafhlaðan er tóm, þá tekur um 4-5 klukkustundir að fullhlaða hana á 230V/30A.


ÖRYGGIÐ Í FYRIRRÚMI

  • 2010 árgerðin af Chevy Equinox fékk 5 stjörnur (af 5 mögulegum) í árekstrarprófum
  • Chevy Equinox var valinn 2009 Top Safety Pick af Insurance Institute for Highway Safety í Bandaríkjunum
  • Diskabremsur eru á öllum hjólum, en að auki er hægt að hlaða rafhlöðurnar með því að láta mótorana hægja á bílnum
  • Bíllinn er hlaðinn loftpúðum (allan hringinn)
  • Fjarstýrð samlæsing
  • Þjófavörn
         

 



RÚMGÓÐUR FJÖLSKYLDUBÍLL
Bíllinn er rúmgóður og hefur bæði gott rými í fram og aftursætum. Meira rými er í baksætum og góð lausn fyrir stóra farþega enda er hægt að draga sætin aftur og skapa þannig allt að 21 cm auka fótarými.

  • Hjólhaf: 285,8 cm 
  • Lengd: 477 cm 
  • Hæð: 176 cm  
  • Breidd: 184,2 cm


Farangursrými: 1803 lítrar


MINNA VIÐHALD
Aðeins 4 hreyfanlegir hlutir eru í rafmótorunum í stað fleiri en 1.100 hreyfanlegra hluta í venjulegri bensínvél. Enginn gírkassi er í bílnum, einungis einn gír fram og einn gír aftur.

Færri hlutir = minna viðhald

CHEVY EQUINOX FRÁ AMP ELECTRIC VEHICLES ER MEÐ 5 ÁRA ÁBYRGÐ FRÁ FRAMLEIÐANDA OG 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á RAFHLÖÐUM, MÓTOR OG DRIFBÚNAÐI.

BÍLLINN KEMUR HLAÐINN AUKABÚNAÐI

  • Bakkmyndavél
  • Leðursæti með hita í framsætum
  • Stillanleg aftursæti
  • Fullkomið miðstöðvarkerfi (fyrir borgarstjóra)
  • Fullkomið Pioneer hátalarakerfi
  • 250-watta sérhannað hljóðkerfi með átta hátölurum og bassaboxi


USB
Ýmsir möguleikar eru á tengingum fyrir síma og tónlistarspilara.

  • Tengdu MP3 spilarann þinn við hljóðkerfið.
  • Bluetooth
  • Hafðu hendur á stýri og talaðu handfrjálst á meðan þú keyrir, innbyggður hljóðnemi fyrir ökumann

 
Chevrolet Equinox er stílhreinn borgarjeppi