Í tengslum við rafbílavæðingu Íslands hefur NLE náð mjög ásættanlegum samningum við nokkra framleiðendur rafbíla fyrir innlendan markað sem og á vissa erlenda markaði. Einn mikilvægasti þátturinn við innleiðingu rafbílavæðingar er einmitt framboð á frambærilegum rafbílum sem standast kröfur neytenda.
Hugsað er fyrir þörfum fyrirtækja, stofnana og einstaklinga og reynt að mæta þeim með bestu mögulegu lausnum sem finnast á markaðnum. Þegar er frágengið með samninga við nokkra rafbílaframleiðendur en viðræður eru í gangi við aðra. Stefnt er á að hefja innflutning á rafbílum þegar árið 2011. Mikilvægt er að hafa í huga að uppbygging rafpósta og rafþjónustukerfis annarsvegar og innflutningur rafbíla og uppbygging þjónustu við þá hinsvegar haldast í hendur.
Nánari upplýsingar um innflutning fyrir íslenskan markað liggur fyrir á komandi mánuðum.
Stofnanir og fyrirtæki sem taka vilja þátt í þjóðarátaki um rafbílavæðingu Íslands geta sent inn fyrirspurn
hér, eða hringt í síma 490 9000 og 864 4615. Einnig er hægt að óska eftir aðstoð við rafbílavæðingu sem innifelur þarfagreiningu og gerð tímaáætlunar samhliða vali á lausnum, bæði hvað varðar bíla og búnað.