NLE er ungt og framsækið fyrirtæki sem er að hasla sér völl á sviði orku og samgöngutækni. Megináhersla er lögð á að fjárfesta í verkefnum sem hafa samfélagsleg áhrif og skipta máli í sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Verkefni þurfa hinsvegar að vera arðvænleg og hafa vaxtamöguleika. Það er skýr stefna fyrirtækisins að stofna til eigin verkefna og er það rauði þráðurinn í verkefnavali.
Eitt helsta verkefni NLE er rafbílavæðing Íslands, sem er drifkrafturinn í framtíðarsýn eigenda fyrirtækisins. Heildstæð rafbílavæðing felur í sér fjölþættar lausnir við öllu sem varðar innleiðingu á notkun raforku fyrir samgöngur. Til að koma slíku á þarf einn aðila sem sér um alla þætti slíkrar innleiðingar og hefur hagsmuni af öllum þáttum. NLE skilgreinir EVEN hf. eitt af dótturfyrirtækjum sínum sem slíkan aðila og hefur byggt sínar lausnir í samræmi við það.
Framleiðsla og uppbygging rafpóstakerfis til sölu á rafmagni fyrir rafbíla, innflutningur og sala rafbíla, uppbygging þjónustu og eftirmarkaðar og endurvinnsla ásamt víðtæku samskiptakerfi fyrir notendur er hluti þessarar rafbílavæðingar.