NLE hefur fjölmarga mjög góða samstarfsaðila sem koma að því að láta verkefni fyrirtækisins verða að veruleika. Við erum stolt af því að fá að vera meðal þessara framsæknu góðu fyrirtækja og stofnana og viljum kynna þau lauslega hér:
SAGA System er íslenskt þróunarfyrirtæki sem framleiðir og þjónustar kerfi til stjórnunar á bílaflota fyrirtækja. Auk hefðbundins flotastjórnunarkerfis hefur SAGA System auk þess skrásett alþjóðlegt einkaleyfi á því að nota GPS punkta úr ökuritum til þess að mæla og meta hröðun, beygjuhraða og hemlun bíla – SAGA Driving. Þessi þrjú atriði, að viðbættum hraða bílsins, eru þau sem hafa mest áhrif á sóun í akstri bílsins. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu fyrirtækisins
www.sagasystem.is
REVA Global er indveskur rafbílaframleiðandi sem er leiðandi á sviði hönnunar og framleiðslu rafbíla í heiminum. Með nýrri verksmiðju í Bangalor á Indlandi er REVA að stíga stórt skref sem ábyrgur framleiðandi á umhverfisvænum bílum. Verksmiðjan er mjög vistvæn og notar m.a. eingöngu sólarorku við framleiðsluna.
www.revaglobal.com
EFLA er alhliða verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki, öflugt þekkingarfyrirtæki, sem veitir vandaða þjónustu í tugum þjónustuflokka. Það býr yfir víðtækri og traustri fagþekkingu og hefur á að skipa um 230 starfsmönnum, þar af um 50 starfsmönnum í erlendum dótturfyrirtækjum. Fyrirtækið sinnir fjölda ólíkra verkefna á hverjum tíma, á Íslandi og í mörgum öðrum löndum. Það leggur ríka áherslu á nýsköpun og rannsóknir og er mannauðurinn dýrmætasta auðlind fyrirtækisins.
EFLA starfar samkvæmt vottuðu gæðakerfi (ISO 9001:2000) og skv. vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi (ISO 14001:2004).
EFLA á dóttur- og hlutdeildarfélög í Noregi, Rússlandi, Frakklandi, Póllandi, Slóveníu, Tyrklandi og Dubai sem sinna ráðgjafar- og þróunarverkefnum.
www.efla.is