Northern Lights Energy telur það skyldu sína að leggja sitt að mörkum í samfélaginu og sýna hug í verki. Grunnhugsunin er að stofna til, koma að eða styrkja verkefni sem skipta máli í íslensku samfélagi. Þetta er rauði þráðurinn í verkefnavali fyrirtækisins og leiðarljós við ákvarðanatöku. Merki þess má glöggt sjá í samfélags-verkefnum á borð við 2012 rafbílavæðing Íslands og Green Iceland. Jafnframt er leitast við að styrkja ýmis málefni, svo sem náttúruvernd, skógrækt og velferð barna.
Unnið er að mótun heilstæðrar stefnu fyrirtækisins um samfélagslega ábyrgð þess.
Vinsamlegast hafðu samband
hér ef sækja á um styrk.