Northern Lights Energy mun innleiða gæðakerfi sem tekur mið af ISO staðlinum í öll verkefni sem fyrirtækið stendur að. Slík gæðakerfi verða byggð upp og starfrækt með þeim hætti að þau verði tæk til vottunar þegar ákvörðun verður tekin um slíkt. Gæðastýringaráætlun verður til fyrir hvert verkefni og nær hún til allra verkþátta.
Með innleiðingu gæðastjórnunarkerfa er komið til móts við kröfur sem gilda víða á hinum alþjóðlega markaði.