NLE einbeitir sér að samfélagstengdum verkefnum, með það að markmiði að hafa áhrif á þá uppbyggingu sem á sér stað í samfélaginu. Að hafa áhrif merkir að það að stofna til nýrra verkefna, styðja við verkefni sem aðrir hafa setta af stað í þeim tilgangi að þau verði að veruleika og skipti máli.
Helstu verkefni eru:
Þjóðarátak um rafbílavæðing Íslands
Rafbílavæðing Íslands byggir á því að búa til heilstæða lausn allra þátta við rafbílavæðingu undir einu vörumerki. Að leiða að borðinu alla þá er skipta máli í slíkri uppbyggingu og stýra henni. Það inniheldur m.a. samþættingu á eftirfarandi þáttum:
- uppbygging heildarkerfis rafhleðslupósta og hraðhleðslustöðva um land allt
- sala á orku til rafbílaeigenda og samþætting við orkufyrirtæki um land allt
- innheimtukerfi fyrir rafbílanotendur með áskrift
- sala rafbíla og uppbygging þjónustu við þá
- stuðla að breytingum á núverandi bílaflota í rafbíla
- forma eðlilegan eftirmarkað með rafbíla
- endurvinnsla á íhlutum rafbíla s.s. rafhlöðum
- fræðslu um gildi rafbílavæðingar
- breytingu á lögum og reglugerðum fyrir rafbílavæðingu
- endurskilgreining og framkvæmd menntunar á sviði samgöngutækja
Volcanic Batteries
Uppsetning og rekstur liþíum rafhlöðuverksmiðju á Íslandi í samvinnu við kínverska rafhlöðuframleiðendur. Stefnt er að uppbyggingu verksmiðju sem nýtir jarðgufu við framleiðsluna og raforku unna á umhverfisvænan hátt með jarðhita eða vatnsorku. Rafhlöðurnar verða sennilega með minnstu umhverfislegu áhrif sem hægt er að hafa við slíka framleiðslu.
Voncanic Finnlandi
Volcanic Finland Oy er fyrirtæki sem sérhæfir sig í rannsóknum, þróun og samþættingu á þekkingu á rafhlöðum fyrir bílaiðnaðinn. Með uppsetningu lítillar rafhlöðuverksmiðju í Kokola Industry Park í Finnalandi er ætlunin að þróa nýjar aðferðir við framleiðslu rafhlaðna í samvinnu við þarlend efna- og tæknifyrirtæki.