|
Gísli Gíslason Stjórnarformaður NLE og Júlíus Karlsson Sviðsstjóri hjá EFLU við undirritun viljayfirlýsingarinnar
|
NLE fyrir hönd verkefnisins 2012 Nýtt upphaf og EFLA. Verkfræðistofa undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf í uppbyggingu Plöggsins sem er heilstætt kerfi rafpósta og hraðhleðslustöðva ætlað fyrir notendur rafbíla. Hér er um að ræða fyrsta skref í átt að samningi milli þessara aðila þar sem sameiginlegt markmið er að byggja Plögg kerfið fyrir rafbíla fyrir árslok 2012 þannig að það teljist með því fremsta sem þekkist í heiminum.
EFLA er alhliða verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki, öflugt þekkingarfyrirtæki, sem veitir vandaða þjónustu í tugum þjónustuflokka. Það býr yfir víðtækri og traustri fagþekkingu og hefur á að skipa um 270 starfsmönnum, þar af um 50 starfsmönnum í erlendum dótturfyrirtækjum. Fyrirtækið sinnir fjölda ólíkra verkefna á hverjum tíma, á Íslandi og í mörgum öðrum löndum. Það leggur ríka áherslu á nýsköpun og rannsóknir.