|
Erik Solberg CEO hjá Carbatt og Gísli Gíslason stjórnarformaður NLE undirrita viljayfirlýsingu
|
Eitt af þeim fyrirtækjum sem kynntu starfsemi sína á EVS 24 rafbílaráðstefnunni í Stavanger í Noregi er sprotafyrirtækið Carbatt frá Noregi. Útsendarar NLE sem á ráðstefnunni voru kynntu sér hugmyndir Carbatt og í framhaldi af því kom Erik Solberg frumkvöðull og framkvæmdastjóri fyrirtækisins hingað til lands. Kynnti Erik Solberg framtíðaráform Carbatt um þróun og framleiðslu á útskiptanlegum rafhlöðum sem hægt væri að nota í margar gerðir bíla. Var undirrituð viljayfirlýsing við Carbatt um uppsetningu slíkra rafhlöðuskiptistöðva hér á landi í framtíðinni. Mun það standa og falla með gengi Carbatt við þróun sinna lausna en NLE hefur tryggt sér réttin hér á landi. Verður forvitnilegt að sjá hvernig framþróunin verður hjá Carbatt á komandi árum en mjög fá fyrirtæki eru í þróun á slíkum búnaði í heiminum. Nánari upplýsingar um Carbatt er hægt að fá
hér.