UNITY SAMSETNINGARVERKSMIÐJA

Northern Lights Energy (NLE) hefur undirritað samkomulag við Liberty Electric Cars (LEC) um samstarf. Samningurinn felur í sér m.a. gerð áræðaleikakönnunar, á uppsetningu á samsetningarverksmiðju fyrir framleiðslu á drifbúnaði fyrir rútur og strætisvagna. Þetta er gert í tengslum við samning sem LEC hefur gert um sölu á 10.000 stk. af slíkum drifbúnaði, til Henan héraðs í Kína. Vinnuheiti verkefnisins er UNITY Samsetningarverksmiðja.

Sennilega hefur ekkert fyrirtæki á Íslandi fengið sambærilegt tækifæri og felst í þessum samningi.

Samningurinn : 

  • milli LEC og Kínverjanna hljóðar upp á 90 milljarða kr. og spannar 5 ár. 
  • opnar á þann möguleika, að byggja upp nýjan iðnað hér á landi, sem í raun, er að stíga sín fyrstu spor um allan heim. 
  • mun skapa fleiri en 800 ný störf auk fjölda afleiddra starfa. 
  • mun opna á þróun nýrrar tækni hér á landi í tengslum við framleiðsluna, sem ekki er fyrirséð hvert stefnir en skapar mikla möguleika. 
  • mun skapa miklar gjaldeyristekjur.

 

Bílaiðnaðurinn stendur á krossgötum, hann er í eðli sínu frekar íhaldssamur og taka allar breytingar langan tíma hjá þessum stóru fyrirtækjum, sem mörg hver eru með þeim stærstu í heiminum. Á undanförnum árum hafa  orðið gríðarlegar tækniframfarir og þróun, sem á sér ekki samlíkingu í iðnaðinum. Ástæður eru m.a. fyrirsjáanleg hækkun á olíu og þróun á öðrum orkugjöfum og nýrri tækni. Í mörgum tilfellum kemur þessi tækni ekki úr bílaiðnaðinum sjálfum. Rafhlöðutæknin hefur sem dæmi þróast í tengslum við handfrjáls tæki hverskonar, GSM síma, borvélar, mælitæki og annan búnað sem knúinn er endurhlaðanlegum rafhlöðum.

Drifkraftur þjóða alla síðustu öld var ódýr orka og þá aðallega í formi olíu og það var nóg af henni, að menn héldu. Gífurlegar framfarir á öllum sviðum er afrakstur þessarar aldar og sér ekki fyrir endann á því. Í upphafi nýrrar aldar sjáum við hinsvegar fyrir endann á nægri ódýrri olíu og það er sá vandi sem heimurinn stendur frammi fyrir. Það var samdóma álit að olían væri óþrjótandi og þjóðir höguðu sér í samræmi við það, með gengdarlausri sóun. Afleiðingarnar eru kunnar og nú leita vísindamenn og þjóðarleiðtogar um allan heim varanlegra lausna, sem hafa ekki allt of neikvæð umhverfisáhrif.

Tækifærin sem liggja í þeirri staðreynd, að heimurinn stendur frammi fyrir þessum vanda, eru gríðarleg. Ef horft er til samgangna þá hafa tæknilausnir komið fram á sjónarsviðið á undanförnum árum, sem gefa raunhæfa möguleika á hreinum orkuskiptum.


Ian Hobday framkvæmdastjóri Liberty Electric Cars

Upp hafa sprottið fyrirtæki um allan heim sem hafa nýtt sér þessa þróun og skapað nýja rafhlöðutækni til notkunar í bílum. Þessi fyrirtæki hafa ekki lagt krónu í þróun á bílunum sjálfum, heldur eingöngu á þeirri tækni, sem notuð verður í slíkum rafbílum, með nokkrum undantekningum þó.

Það eru þessi fyrirtæki m.a. sem eru að opna, fyrir þennan nýjan iðnað, sem nýtir sér tækni frá hefðbundnum bílafyrirtækjum, til að setja sinn drifbúnað í. 


Dæmi um drifbúnað fyrir rafbíla (DowKocam rafhlöður)

Framleiðsla drifbúnaðar fyrir rafbíla er ný framleiðslugrein. Hvergi er verið að framleiða slíkan búnað í miklu magni en slík framleiðsla er hinsvegar að fara af stað víða. Möguleikar eru á að koma upp slíkri framleiðslu hér á landi og fá einhvern hluta af þeim samningum sem gerðir verða á komandi árum. 

Þessi framleiðsla er viðbót við það sem hefðbundnir bílaframleiðendur vinna að. Slíkur drifbúnaður er framleiddur af þeim sem vilja nýta sér þróun og framleiðslu „annarra“ bílaframleiðenda og einbeita sér þess í stað að þróun drifbúnaðar í staðin fyrir að leggja fé í þróun á bílunum sjálfum. Með því móti sparast umtalsvert fé sem getur farið beint í hönnun og þróun drifbúnaðarins.


Þess má geta að Liberty notar Range Rover til að sýna virkni drifbúnaðar síns og kallast hann E Range Rover. Hann er 4*4 WD, undir 9 sek. í hundraðið og kemst allt að 320km á einni hleðslu.

9.1.2011