Umhverfisráðuneytið með í þjóðarátakinu

Umhverfisráðherra undirritaði þátttökusamning við þjóðarátak um rafbílavæðingu Íslands. Þetta var mikilvægur áfangi og það hafa nokkrar ríkisstofnanir einnig gert og þær leiða þær breytingar sem munu eiga sér stað á komandi árum. Líkt og í nágrannalöndunum eru það ríkisstofnanir sem skipta miklu máli í þessari þróun. Það verður ánægjulegt að setja upp alvöru orkupóst fyrir utan ráðuneytið þegar þar að kemur.


Það fór vel á með Svandísi Svavarsdóttur og Magnúsi Jónssyni við undirritun samningsins.

Við leyfum okkur að vitna í orð Svandísar úr skýrslu Umhverfisráðuneytisins "Umhverfi og auðlindir - Stefnum við í átt til sjálfbærrar þróunar?" því okkur finnst þau passa vel við.
         

"Á liðinni öld börðust Íslendingar af einurð fyrir fullum rétti þeirra sem á var hallað og margir sigrar unnust.
Ég geng til minna verka í umhverfisráðuneytinu þess fullviss að baráttan fyrir sjálfbærri þróun verði jafn
árangursrík."

Svandís Svavarsdóttir
Umhverfisráðherra

 

Nýting raforku í samgöngum er mikilvægur hluti þess að gera landið sjálfbært.

 

16.11.2010