Þáttaka í Driving Susteinability

 
Teitur Þorkellson hjá Framtíðarorku leiðir panelumræður
            
Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti

NLE tók þátt í hinni árlegu Driving Susteinability ráðstefnu haldin var dagana 16-17 september á Hótel Hilton.  Eins og undanfarnar tvær ráðstefnur þá voru fjöldi góðra erlendra fyrirlesara og gesta víða að úr heiminum. Hægt er að fræðast meira um ráðstefnuna hér

NLE bauð áhugasömum að prufukeyra Tesla Roadster sportbílinn sem fyrirtækið hefur til að kynna rafbílavæðingu hér á landi. Einn af þeim sem fékk að prufukeyra Tesluna með Sturlu Sighvatssyni hjá NLE var Ichiro Fukue,  Executive Vice President hjá Mitsubishi Heavy Industries í Japan. Þótti Ichiro Fukue sem er háttsettasti yfirmaður Mitsubishi sem hingað hefur komið mjög til Teslunnar koma og svo er spurning hvort þessi upplifun skili sér á einhvern hátt inn í hjá Mitsubishi. Á ráðstefnunni kynnti Ichiro Fukue einmitt að 2 i MiEV rafbílar frá Mitsubishi kæmu hingað til lands á næsta ári til reynsluaksturs. Hann viðurkenndi að ekki væri hægt að líkja þessum bílum saman en báðir væru boðberar nýrra tíma í samgöngum í heiminum.
18.9.2009