
JB Strauber CTO hjá Tesla, Georg Blankenship og sjálfur Elon Musk með orðið
|
Tesla Motors opnaði sýningarsal í einni af háborgum tískunnar, Mílanó á Ítalíu. Salurinn er á Via Cerva nr. 31, á svæði þar sem fjöldi hátískubúða. Tesla er að skapa sér sérstöðu í bílaheiminum með því að vera með óhefðbundna sýningarsali sem staðsettir eru í hjarta þeirra borga sem þeir eru staðsettir í og þá helst á mjög fjölfornum götuhornum. Tesla hefur ráðið Georg Blankenship til að sjá um vörumerkið, hönnun á sýningarsölunum og allt er við kemur brandinu. Blankenship lagði grunnin a GAP veldinu og hannaði allar búðir keðjunnar áður en Steve Jobs fékk hann til liðs við sig til að hanna allar Apple verslanirnar.
Tesla hefur þegar opnað 11 sýningarsali í Evrópu og vonandi verður einn opnaður hér á landi innan fárra ára.
Fulltrúi Northern Lights Energy var á stðanum og tók nokkrar myndir en það voru um 400 gestir viðstaddir opnunina og mikið um dýrðir.
 |
|
Á blaðamannafundi við opnunina sat Elon Musk og
hanns sérfræðingar fyrir svörum. Ítalska pressan og
bílablaðamenn allstaðar frá Evrópu voru mættir á
staðinn. Þrátt fyrir langa hefð í hönnun og smíði
sérhæfðra sportbíla eins og Ferrari og Masarati finnst
Ítalanum Tesla spennandi kostur.
Sjá nánar á http://www.teslamotors.com/milan
|