George Clooney ? staddur á sýningu í Borgarnesi ? hver veit.
NLE tók þátt í sýningunni “Við þjónum þér” sem haldin var í Sýningar– og reiðhöllinni í Borgarnesi dagana 6. og 7. nóvember 2009. Á sýningunni kynntu fyrirtæki vörur og þjónustu fyrir forráðamönnum sveitarfélaga, stofnana þeirra og fyrirtækja. Þarna voru fyrirtæki að kynna allt það nýjasta og hagkvæmasta sem þarf til reksturs sveitarfélaga.
Það er á margan hátt djörf ákvörðun að efna til slíkrar kynningar að vetri til úti á landi. Aðstandendur sýningarinnar töldu að í slíku árferði væri ef til vill sókn besta vörnin. Sveitarfélög þurfa auðvitað, rétt eins og fyrirtæki að kynna sér allt það nýjasta í vöru og þjónustu ekki síst nú þegar spara þarf og hagræða í rekstri.
Sýningin var haldin á föstudegi og laugardegi en þetta var ekki nógu vel heppnað að mati sýnenda en við áttum ánægjuleg samskipti við fjölda fólks sem sýndi 2012 verkefninu áhuga. NLE var með til sýnis bæði rafpósta og Tesla sportbíllinn og milli 30 – 40 manns prófuðu bílinn á laugardeginum.