NLE hefur stofnað fyrirtækið Volcanic Batteries ehf. og er því ætlað að standa að undirbúningi og athugun á möguleikum þess að reisa hér á landi rafhlöðuverksmiðju. Unnið verður að þessum athugunum í samstarfi við kínverska rafhlöðuframleiðandann Thunder Sky sem er mjög framalega í framleiðslu á líþíum rafhlöðum sem m.a. eru notuð fyrir rafbíla.