Kynning á rafbílum frá Smith Electric Vehicles

Haldin var kynning á vöru- og fólksflutningabílum frá Smith Electric Vehicles á Hilton Nordica Hótel. Var kynningin ágætlega sótt og var það sölustjóri Smith í Evrópu Kevin Harkin sem kynnti bílana. Einnig voru haldnar sér kynningar fyrir fyrirtæki og stofnanir sem eru með vöruflutninga og fólksflutningabíla.  Smith hefur framleitt rafbíla í 90 ár eða síðan 1920. Í dag er fyrirtækið með verksmiðjur bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum og stefnt er á að opna nýja verksmiðju í Frakklandi á næsta ári.

  
Kevin Harkin sölustjóri Smith í Evrópu                             Margir áhugasamir um rafbíla mættu

Smith línan

Smith býður breiða línu rafbíla fyrir fyrirtæki og stofnanir má sjá hluta af því hér að neðan. 

Smith framleiðir bíla sem eingöngu eru knúnir rafmagni og hefur náð sérstöðu á þeim markaði með allt að 12 tonna vörubíla. Smith bílar geta fullnægt um 80% af öllum akstri fyrirtækja og stofnana á Íslandi þar sem flestir bílar eru keyrðir minna en 100km á dag.  Smith rafbílar geta komist allt að 240km á einni hleðslu með fullfermi. 

Smith bílarnir koma vel út í samanburði við bensín eða dísilbíla þegar heildarkostnaður er útreiknaður yfir líftíma bílsins. Bílarnir eru hljóðlátir og menga ekkert.

Viðhald og rekstur Smith rafbíla slær allt annað á markaðnum út í einfaldleika og sparnaði. Hægt er að fá leiðsögukerfi í bílana ásamt eftirlitsbúnaði sem beintengdur er móðurtölvu Smith í Englandi og vaktar bílana allan sólahringinn alla daga ársins. Slíkur búnaður eykur mjög rekstraröryggi og lækkar viðhaldskostnað sem er að jafnaði 1/3 af viðhaldskostnaði hefðbundins dísilbíls. Til samanburðar má geta þess að mótorinn í Smith bílum er með 3 hreyfanlega hluti á meðan hefðbundin dísilmótor er með 1000 eða fleiri hreyfanlega hluti. Því færri hlutir - því minni hætta á sliti eða bilunum.

Þessir bílar falla algerlega að stefnu ríkisstjórnar Íslands um vistvæna bíla og er þess að vænta að fyrirtæki og stofnanir sýni frumkvæði við sinn rekstur með því að nota rafbíla sem nota eingöngu innlenda raforku sem orkugjafa. Allt annað er óásættanlegt þar sem m.a. gjaldeyrir er orðin mjög dýr og innlend orka bæði atvinnuskapandi og mengar ekkert fyrir utan það að vera ódýr kostur.

Smith rafbílar er hægt að fá í mjög mörgum útfærslum og hér að neðan eru nokkur dæmi:

   

  

 

31.10.2010