Sérfræðingar Bright Automotive

 
Í heimsókn hjá Fjárfestingarstofu talið frá vinstri Kristinn Hafliðason, Dave Lauzun, Lyle W. Shuey, Sturla Sighvatsson og Þórður Hilmarsson
NLE fékk til sín sérfræðinga frá bandaríska fyrirtækinu Bright Automotive sem er nýtt sprotafyrirtæki sem stofnað var sérstaklega utanum nýja tvinn tækni.  Þetta voru þeir Lyle W. Shuey - VP Marketing and Sales og Dave Lauzun - Executive VP Product Development. Bright er með tvær deildir í fyrirtækinu, annarsvegar er það framleiðsluhlutinn en þar hefur verið hannaður nýr bíll frá grunni sem nýtir sér þessa Tvinn tækni. Um er að ræða sendibíl sem er hannaður með minnstu mögulegu vindmótstöðu og nefnist Bright Idea.  Hinsvegar er það hönnunar, ráðgjafa og þjónustudeild sem sérhæfir sig í ráðgjöf við hönnun bíla og breytingar á eldri módelum yfir í rafbíla. Tilgangur heimsóknarinnar var annarsvegar sá að undirrita samstarfssamning um nýtingu þeirrar tækni sem Bright hefur þróað fyrir breytingar á eldri bílum og hinsvegar að ræða mögulegan innflutning á Bright Idea bílnum þegar hann kemur í framleiðslu árið 2013. 
10.6.2009