Gísli Gíslason NLE, Luis E. Arreaga sendiherra og Sturla Sighvatsson NLE
Sendiherra Bandaríkjanna Luis E. Arreaga fékk að prófa nýja AMP Equinox rafjeppann í vikunni. Luis er mikill áhugamaður um grænar samgöngur og er vel meðvitaður um stefnu Bandaríkjastjórnar um orkuskipti í samgöngum.
Obama stjórnin hefur tekið mjög stór og mikilvæg skref til að auka vægi grænna orkugjafa í samgöngum. Það er ekki auðvelt í landi þar sem olía og bensín hefur verið jafn ódýrt og raun ber vitni. Bensínlítrinn í Bandaríkjunum kostar minna en 1/3 af því sem hann kostar hér á landi. Stjórn Obama hefur lagt gríðarlegar upphæðir í að þróa grænar lausnir í samgöngum og er rafbíllinn og tækni honum tengd þar efst á blaði. Það var því ánægjulegt að geta boðið Luis E. Arreaga að prófa afrakstur þessara ákvarðana í formi bandarsíkra rafjeppa hér á landi.
Sendiherrann er duglegur bloggari samhliða sendiherrastarfinu og
hér er hægt að lesa það.