Samstarf við listamannin Gert Hof

NLE kemur að verkefninu Vox Naturae / Rödd Náttúrunnar sem snýst um að ná athygli heimsins, fá jákvæða umfjöllun erlendra fjölmiðla og draga að þúsundir ferðamanna til landsins.  Að snúa við þeirri þróun sem varð í umfjöllun um Ísland eftir hrunið mikla 2008 og gosið í Eyjafjallajökli í vor.

 
"Lights of freedom" - Opnun Trump Tai Mahal hótelsins í Atlantic City / Tónlist frá Bruce Springsteen

Verkefnið Vox Naturae er stórkostleg ljósasýning þar sem jökull er lýstur upp á einstakan hátt af hinum heimsþekkta listamanni Gert Hof. Kom hann til landsins í lok maí til að skoða aðstæður og kanna mögulega jökla til að nota í sýninguna. Voru Snæfellsjökull, Svínafellsjökull og Gígjökull í Eyjafjallajökli skoðaðir sem mögulegir staðir.  Endanleg ákvörðun um val á jökli verður tekin fljótlega.

Hr. Ólafur Ragnar Grímsson tók á móti listamanninum á Bessastöðum í stuttri heimsókn og leist vel á verkefnið.

Við munum segja nánar frá framgangi verkefnisins en nánari upplýsingar um verkefnið er að  finna hér.

 
 Á Snæfellsjökli
 
 Sólheimasandur í öskumystri
 
 Gert Hof fyrir utan Bessastaði
2.6.2010