Rafsendibíll skoðaður í London

Enn einn túrinn var farin til London í þeim tilgangi að skoða nýja möguleika í rafbílum. Að þessu sinni var VW sendibíll skoðaður en hann er með drifbúnaði frá þýska hátækni fyrirtækinu RLE International. Fyrirtækið er fyrst og fremst sérhæft í tæknilausnum fyrir ákveðnar iðngreinar. Það eru aðallega þrjú svið sem unnið er á en megin aðaláherslan er á bílaiðnaðinn og  orkugeirann.  Viðskiptavinir RLE eru stóru bílaframleiðendurnir s.s. eins og GM/Opel, Daimler Benz, Ford Motor Company og AUDI svo einhverjir séu nefndir.

              
              Gísli Gíslason sá um að skoða og prufukeyra bílinn og var mjög ánægður með útkomuna.
 

RLE hefur hannað drifbúnað sem verður settur í fjölda tegund af bílum en VW Caddy var notaður sem platform til að sýna tæknina. Hvenær framleiðsla fer í gang er ekki ljóst en við reynsluakstur var bílinn mjög góður.  Þessi útfærsla er með 200km drægni, gríðarlega góð nýttni í mótornum eða 97%. Bíllinn er kraftmikill, fer undir 12 sekúndur í hundraðið og hámarkshraði er tölvustýrður 130km.

Bílinn er með Lithíum Polymer rafhlöðum og hleðslutími er uppgefin:

  • Með venjulegum 16A tengli um 8 klst.
  • Með orkupósti frá EVEN 32A um 2 klst.
  • Hraðhleðsla undir 1 klst.

Frekari upplýsingar um þennan bíl munu koma síðar, en upp´´ysingsar um fyrirtækið er hér.

22.2.2011