Rafbíll í fyrsta sinni valinn bíll ársins Evrópu

Það voru 57 blaðamenn sem skrifa um bíla frá 23 löndum í Evrópu sem völdu Nissan Leaf sem bíl ársins í Evrópu árið 2011.  


Evrópskir bílablaðamenn hafa kosið Nissan Leaf sem bíl ársins í Evrópu 2011.
Mynd: Nissan

Dómnefndin vottar hér með að Nissan Leaf brýtur blað sem rafbíll. Nissan Leaf er fyrsti rafbíllin sem kemur á almennan markað og er raunverulegur valkostur og getur keppt við hefðbundna bíla sem á markaðnum eru,  sagði formaður dómnefndar fyrir Car of the Year, Håkan Matson.


Sprækur bíll
Nissan Leaf er 100% rafbíll með einn 80kW rafmótor, 24kWh rafhlöðu og með 145km hámarkshraða. Dægni rafhlöðunnar á einni hleðslu er um 160km.

Carlos Ghosn, stjórnarformaður Nissan / Renault samsteypunnar segir að þessi viðurkenning sé ekki bara fyrir það að bíllinn sé raunverulegur valkostur hvað varðar öryggi, rekstur, orkunýtingu og aksturseiginleika. Viðurkenningin er ekki síður fyrir Nissan sjálft, sem leiðandi, framsækið fyrirtæki á rafbílamarkaðnum og einnig viðurkenning á skýrri framtíðarsýn fyrirtækisins hvað varðar bílgreinina sem endurspeglast í þessum fyrsta rafbíl af mörgum sem Nissan mun setja á markað á komandi árum.


Á markað núna
Fyrstu Nissan Leaf rafbílarnir koma á markað í Japan og Bandaríkjunum í desember á þessu ári. Í Evrópu byrjar salan á nýju ári í Portúgal, Írlandi, Bretlandi og Hollandi.

Bíllinn verður fyrst um sinn eingöngu framleiddur í Japan en fyrirtækið er að reisa verksmiðjur í Evrópu og Bandaríkjunum sem hefja munu framleiðslu fyrir þessa markaði í lok árs 2012 og byrjun árs 2013.

Þeir bílar sem voru efstir á blaði fyrir tilnefningu fyrir Car of the Year 2011 voru Alfa Romeo Giulietta, Citroën C3/DS3, Dacia Duster, Ford C-Max/Grand C-Max, Opel/Vauxhall Meriva, Volvo S60/V60 og svo rúsínan í pulsuendanum Nissan Leaf.

27.11.2010