NLE undirritar sölusamning við AMP

Fréttatilkynning

Northern Lights Energy (NLE) hefur undirritað sölusamning við AMP Holding/AMP Electric Vehicles (AMP). 

Fréttatilkynning hefur verið send út og má lesa hana hér.

Eins og fram kemur í fréttatilkynningunni, snýst samningurinn um sölu á nokkrum gerðum rafbíla frá AMP á fimm ára tímabili.  Samningurinn er mjög þýðingarmikill fyrir NLE, þar sem félagið fær réttinn á sölu rafbíla frá AMP á öllum Norðurlöndunum.



Eins og flestum er kunnugt, er mikill áhugi á rafbílum á Norðurlöndunum og eftirspurn eftir bílum mikil. Löndin eru mis langt komin í rafbílavæðingunni, en segja má að Norðmenn séu einna fremstir í rafbílavæðingu, enda eru orkuskipti í samgöngum í Noregi drifin áfram með gríðarlegum ríkis-styrkjum. Norðmenn eru einnig í fremstu röð í heiminum hvað varðar ívilnanir fyrir kaupendur rafbíla í formi niðurfellingu tolla og aðflutningsgjalda og ekki er innheimtur virðisauki af rafbílum. Nú þegar hafa Norðmenn sett upp meira en 2.600 orkupósta til að hlaða rafbílana. Á þessu ári hefst uppsetning hraðhleðslustöðva, einnig með styrk frá hinu opinbera. Í Noregi eru því kjöraðstæður fyrir markaðssetningu rafbíla, en rétt um 3.400 rafbílar eru nú þegar á götunum og eftirspurnin meiri en framboðið. NLE er í samstarfi við aðila í Noregi vegna markaðssetningar rafbílanna þar í landi sem hefst síðla sumars.

Fyrsti bílinn sem AMP afhendir NLE er nú þegar á leiðinni til landsins, en það er Chevrolet Equinox borgarjeppi, sem verður Evrópufumsýndur í Hörpunni 18. maí næstkomandi. Nokkrir aðilar frá AMP munu koma til landsins og verður námskeið fyrir tæknimenn haldið samhliða. Þess má geta að 8 ára, eða 160.000 km ábyrgð er á drifbúnaði bílsins og rafhlöðunum. Ábyrgðin felur m.a. í sér að í lok ábyrgðartímans er 80% af upp¬runalegri getu rafhlöðunnar enn til staðar.

Flestir rafbílar sem koma á markað á þessu og næsta ári eru minni fólksbílar og sendi¬ferðabílar, en fáir jeppar. Það er því ánægjulegt að auk Chevrolet Equinox rafjeppans mun fyrsti  Mercedes Benz ML EV rafjeppinn frá AMP koma hingað til lands í júní næst¬komandi. Samkvæmt markaðs-rannsóknum sem NLE hefur staðið fyrir, er góður markaður fyrir slíka rafjeppa á Norðurlöndunum. Verð á hefðbundnum Mercedes Benz ML dísiljeppa í Noregi er frá 20-36 milljónir, en áætlanir gera ráð fyrir að rafbílaútgáfan verði töluvert ódýrari þar í landi.

Þeir samningar sem NLE er að gera við rafbílaframleiðendur eru gerðir í þeim tilgangi að auka fjöl-breytni rafbíla á markaðnum. Þetta er gert í tengslum við Þjóðarátak um rafbílavæðingu Íslands, sem EVEN hf., dótturfyrirtæki NLE stendur að. Þjóðarátakinu er ætlað að byggja upp heildstætt kerfi orkupósta og hraðhleðslustöðva um land allt fyrir eigendur rafbíla.

NLE fagnar samningi við AMP, enda hefur fyrirtækið á að skipa þungavigtarliði úr bíla¬iðnaðinum, sem meðal annars stóð að gerð fyrsta rafbílsins hjá General Motors, EV1 í lok síðustu aldar.

Nánari upplýsingar um AMP er að finna á hér.
Nánari upplýsingar um samninginn gefur Sighvatur Lárusson – GSM 864 4615 sighvatur@nle.is 

19.4.2011