NLE opnar í Noregi

NLE hefur stofnað dótturfélag í Noregi. Félagið heitir Northern Lights Energy Norge AS og er með aðsetur í Stabekk í sveitarfélaginu Bærum sem liggur að Ósló.  Sveitarfélögin Asker og Bærum sem liggja samhliða á vesturbakka Óslófjarðar eru með flesta skráða rafbíla í Noregi og það er því engin tilviljun að þessi staðsetning var valin.  Félagið mun einbeita sér að innflutningi og sölu á rafbílum fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. Eins og margir vita er Noregur leiðandi í heiminum hvað innleiðingu rafbíla varðar og eru nú þegar tæplega 5.000 rafbílar á götum landsins. Flestir þessara bíla eru hinsvegar í einkaeigu og hafa einmitt fyrirtæki og stofnanir haldið að sér höndum vegna lítils úrvals atvinnubíla.
     
Nú opnast möguleikar fyrir þessa aðila að festa kaup á atvinnubílum frá NLE og leggur fyrirtækið í byrjun mesta áherslu á vöru og fólksflutningabíla frá breska fyrirtækinu Smith Electric Vehicles sem framleitt hefur rafbíla síðastliðin 90 ár. NLE í Noregi hefur opnað nýja heimasíðu þar sem upplýsinagar um vöruframboð og annað verður kynnt en slóðin er www.nlen.no
1.9.2011