NLE opnar 2012 verkefnið formlega

     
Samhliða kynningu á 2012 verkefninu voru rafbílar auglýstir til að vekja fólk til umhugsunar um að á markaðinn er koma flottir, öflugir og umfram allt venjulegir bílar sem knúnir eru rafmagni. Bílar sem ná allt að 450km á einni hleðslu og allt að 12 tonna rafknúnir vöruflutningabílar sem draga 240km fullhlaðnir á einni hleðslu.
_______________________________________________________________________________________________________
NLE opnar í dag formlega verkefnið 2012 Nýtt upphaf. Verkefnið 2012 boðar nýtt upphaf í notkun bíla á Íslandi. Markmiðið er að bílafloti landsmanna verði að stærstum hluta knúinn áfram af raforku og skal heildstætt kerfi rafpósta og rafhleðslustöðva verið tilbúið fyrir árslok 2012.

Til að það markmið náist þarf fyrst að sannfæra Íslendinga um að þetta sé framkvæmanlegt. 2012 hefur þegar hafist handa við að byggja upp kerfi sem gefur notendum rafbíla kost á því að Plögga bílana sína við rafhleðslupósta um land allt. Það mun tryggja að eigendur rafbíla geta keyrt áhyggjulausir um landið þó að hleðslan minnki.

Í dag birtast auglýsingar í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu þar sem verkefnið er kynnt í stuttu máli.

Til að sýna stuðning í verki er hægt að tengja sig á Facebook og Twitter hér að neðan.

17.6.2009