NLE Norge AS í fréttunum

NLE í Noregi var í umfjöllun hjá eða Rafbílasambandi Noregs ( Norsk Elbilforening ). NLE er eini aðilinn Noregi sem býður stærri gerðir rabíla, þ.e. bæði vöru- og fólksflutningabíla. NLE er m.a. umboðsaðili fyrir Smith Electric Vehicles á Norðurlöndunumog byrjar sölu þessara bíla í Noregi.


Smith rafbíll sem útbúin er sérstaklega til notkunar fyrir orkufyrirtæki.  

Fyrir áhugasama um rafbíla þá má geta þess að Noregur er sennilega það land í Evrópu sem leggur mest uppúr því að koma rafbílum á göturnar. Með stjórnvaldsákvörðun árið 2008 var lögð lína sem ætlunin er að fylgja til ársins 2020 að minsta kosti. Grunnmarkmið þessara ákvarðana eru eftirfarandi:

  • Að 200.000 rafbílar verði á götum Noregs árið 2020.
  • Að styðja við uppbyggingu hleðslukerfis fyrir rafbíla – bæði almenna orkupósta og hraðhleðslu.
  • Að aðlaga lög og reglur þannig að sem minstar hindrandir verði fyrir því að fyrrnefnd markmið náist. Einnig eru í boði ýmsar ívilnanir fyrir notendur rafbíla.

Fram til þessa hefur megin sala rafbíla verið fólksbílar. Um 5.000 rafbílar eru á götunum Noregs og þar af hafa rúmlega 1.000 verið seldir á þessu ári. NLE er að með þessu að opna nýjan markað með því að bjóða atvinnubíla fyrir Norsk fyrirtæki og stofnanir.

7.11.2011