Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga. Einnig er vikunni ætlað að hvetja stjórnvöld til að stuðla að notkun þessara samgöngumáta og fjárfesta í nauðsynlegum aðbúnaði.
NLE í Noregi tók þátt í samgönguviku með því að vera þátttakandi í kynningu á rafbílum sem haldin var á vegum vikunnar og rafbílasambandsins í Noregi.

NLE sýndi 3 rafbíla og vakti það verðskuldaða athygli. Hér eru þrír af starfmönnum NLE í Noregi við bílana á hinni sögufrægu götu Karli Johan. Frá vinstri Sighvatur Lárusson framkvæmdastjóri, Sturla Sighvatsson markaðsstjóri og Guðmundur H. Björnsson fjármálastjóri NLE.