NLE opnaði fyrst fyrir aðkomu erlendra fjárfesta í lok síðasta árs. Í desember sl. var síðan undirrituð viljayfirlýsing við Neistar fjárfestingarsjóð, sem er í eigu fjölmargra erlendra frumkvöðla. Stofnfé sjóðsins er um 4 milljónir dala, u.þ.b 460 milljónir kr. Það er hópur íslenskra aðila sem hefur unnið að því um tíma að fá til landsins erlenda frumkvöðla og athafnamenn sem koma úr heimi vísinda og nýsköpunar sem lið í sóknaraðgerðum til að fá erlendar fjárfestingar aftur inn í landið. Ljóst er því að átakið „Inspired by Iceland“ hefur virkað.
Stefnt er að því að sjóðurinn verði með að lágmarki 20 milljónir dala til fjárfestinga í samfélagslega ábyrgum verkefnum hér á landi með það að markmiði að efla nýsköpun og atvinnusköpun. |
|

Robert Robertsson og David Lesperance frá
Neistar Fjárfestingarsjóður með Sturlu Sighvatssyni Framkvæmdastjóra Northern Lights Energy við undirritunina.
|
Eins og flestir vita þá er áhugi erlendra fjárfesta á íslandi frekar lítill í dag. Hugmyndafræðin er að vera með sértækar sóknaraðgerðir í stað varnaraðgerða sem mestur tíminn hefur farið í á undanförnum tveimur árum. Sóknarfærin hér á landi eru mörg en einnig eru margar hindranir fyrir því að koma á eðlilegu fjárfestingarumhverfi fyrir þá sem hafa áhuga á uppbyggingu hér á landi.
Það eru grænar fjárfestingar sem þessir athafnamenn ætla að einbeita sér að s.s. eins og í stafrænum iðnaði og þekkingariðnaði hvers konar. Sumir þessara aðila eru með starfsemi sína dreifða í mörgum löndum og hafa þeir sýnt töluverðan áhuga á að sameina alla starfsemi sína hér á landi ef starfsumhverfið byði upp á það.
EVEN hf. sem er dótturfélag NLE og sér um rafbílavæðingu Íslands er eitt af þeim fyrirtækjum sem sjóðurinn hefur ákveðið að fjárfesta í og er um að ræða fjárfestingu upp á 2,3 milljónir dala eða 260 milljónir kr. Sjóðurinn lítur svo á að viðskiptamódel EVEN sé ákjósanlegur grunnur til að útvíkka á öðrum mörkuðum. Þetta er mikilvægt skref í þróun rafbílavæðingar hér á landi og alþjóðleg viðurkenning á verkefninu.