Kynning í Hörpu

                   
NLE og EVEN hf. buðu til kynningar í Hörpu miðvikudinn 8. Júní. Tilefnið var kynning á tveimur tegundum rafjeppa sem fyrirtækin eru að hefja innflutning og sölu á hér á landi og á Norðurlöndunum. Þetta er liður í áætlun þessarra fyrirtækja um  rafbílavæðingu Íslands. Fjölmargir gestir komu og erum við þakklát fyrir þann áhuga og velvilja fyrir rafbílavæðingu Íslands sem við fundum hjá áhugasömum gestum. 

                
Joe Paresi Chairman of the Board AMP
   
   Luis E. Arreaga Ambassador Bandaríkjanna

Fjöldi erlendra gesta heiðraði samkomuna með nærveru sinni og Luis E. Arreaga Sendiherra Bandaríkjanna og Joe Paresi stjórnarformaður AMP héltu stutta tölu um samstarf NLE og AMP.

Rafbílavæðing
Rafbílavæðing er nýtt hugtak sem hefur verið að festast í sessi víða um heim en skilgreining hugtaksins er á reiki. Hvað felst í því að rafbílavæða bæ, borg eða jafnvel heilt land? Hverjir eru þeir sem taka þátt í slíku ferli, hvað gera þeir og hvernig?

Unnið hefur verið með erlendum sérfræðingum að skilgreiningu á hvað rafbílavæðing felur í sér og við að finna bestu lausnir fyrir markaðinn. Fyrirtækin hafa verið í samningaviðræðum við fjölda rafbílaframleiðenda og var ætlunin með þessari kynningu að sýna afraksturinn af því en það eru þessir fyrstu rafjeppar.
 

     

Rafjeppar
Rafjepparnir sem kynntir voru koma frá Bandaríska fyrirtækinu AMP Electric Vehicles (AMP) og mun fyrirtækið afhenda fyrstu bílana til viðskiptavina í september. Um er að ræða AMP ML 350 Electric og AMP Equinox Electric.
 
Í hugum margra eru rafbílar litlir og kraftlausir, en þessir tveir rafjeppar kollvarpa þeim hugmyndum algerlega. Bílarnir eru flottir, kraftmiklir og skila öllu því sem hefðbundnir borgarjeppar gera í daglegum akstri. Hægt er að aka um 100km+ á einni hleðslu og má gera ráð fyrir að orkukostnaður geti legið á bilinu 2 til 4 krónur pr. km. og fer það eftir akstursmáta.
 
Átta ára eða 160.000km ábyrgð er gefin á drifbúnaði og rafhlöðum og fer það eftir hvort verður á undan. Afl bílanna er samsvarandi 220 hestöflum, þeir eru undir 9 sekúndum í hundraðið og rafhlöðupakkinn er 37kWh.

9.6.2011