|

Örn Óskarsson framkvæmdastjóri Samleiðar, Johan Dahl iðnaðarráðherra Færeyja og Gísli Gíslason NLE
|
Jóhan Dahl iðnaðarráðherra í færeysku Landstjórninni kom í heimsókn til NLE í nóvember mánuði. Ástæða þess er sú að Landsstjórnin er að skoða möguleika á rafvæðingu samgangna í Færeyjum og er það liður í heimsókn Jóhans að kynna sér það sem NLE hefur upp á að bjóða. Framhald af þeirri heimsókn verður í mars 2010 þegar hópur fer til Færeyja á vegum NLE. Þar verður kynnt fyrir Landsstjórninni sem og fyrirtækjum og stofnunum möguleg heildarlausn fyrir rafbílavæðingu Færeyja með þátttöku þarlendra aðila.