
Frá vinstri Linda Ho CEO Thunder Sky, Gisli Gíslason frá NLE, Winston Chung stofnandi Thunder Sky og Jukka Jarvinen frá NLE
Jukka Jarnvinen tækniþróunarstjóri NLE og Gísli Gíslason forstjóri NLE heimsóttu höfuðstöðvar Thunder Sky Energy Group Limited rafhlöðuframleiðandans í Shenzhen í Kína. Tilgangur ferðarinnar var viðræður við eigendur Thunder Sky vegna uppsetningar á fyrirhugaðri rafhlöðu verksmiðju hér á landi. Fór vel á með þeim félögum og Winston Chung eiganda og stofnanda fyrirtækisins og Lindu Ho forstjóra.
Thunder Sky er einn stærsti rafhlöðu framleiðandi í heiminum og eru einkaleyfisbundnar rafhlöður þeirra framleiddar í 11 verksmiðjum víða um heim. Eftir skoðunarferð um verksmiðjurnar var þeim færður Íslenski fáninn en fyrirtækið selur vörur sínar til yfir 55 landa og safnar fánum frá sölusvæðum sínum. Jukka Jarvinen tæknistjóri NLE hefur verið ráðgjafi Thunder Sky til margra ára og hefur fasta viðveru hjá fyrirtækinu nokkra daga í hverjum mánuði. Von er á Winston Chung til landsins á næsta ári þar sem hann mun skoða aðstæður og þá möguleika sem eru hér á landi.