Svava Atladóttir hönnuður og verkefnisstjóri hjá IDEO stendur hér við rafhleðslupóstinn sem notaður var
fyrir EV1 rafbílinn frá GM. |
Aðilar frá NLE heimsóttu hönnunarfyrirtækið IDEO í höfuðstöðvum þess í Paulo Alto í Kaliforníu. Tilgangur ferðarinnar var að ræða samstarf fyrirtækjanna um þróun 2012 kerfisins. Gaman er að segja frá því að IDEO var eitt af þeim fyrirtækjum sem leigði EV1 rafbílinn frá GM sem seldur og leigður var á árunum 1996 til 1999 í Bandaríkjunum og GM dró síðan út af markaðnum eins og frægt er orðið. IDEO er framsækið fyrirtæki og þar á bæ fannst mönnum augljóst mál að leigja slíkan bíl og taka þátt í framþróun í bílaiðnaði og til að auðvelda notkun var hleðslupóstur settur upp við höfðustöðvar fyrirtækisins. GM innkallaði síðan bílinn og eyðilagði hann eins og gert var við nánast alla EV1 bílana. Heimildarmyndin "Who Killed the Electric Car" var gerð í framhaldi af þessari aðgerð GM og er hægt að fræðast um hana
hér.

Í sömu ferð voru höfuðstöðvar Tesla Motors heimsóttar en stutt er á milli höfðustöðva þessara fyrirtækja í Kaliforníu. Tilgangur heimsóknar til Tesla var sá að ræða fyrirhugaða framleiðslu Model S rafbílsins en bíllinn er væntanlegur á markað í lok árs 2011. Eins og kunnugt er hefur NLE pantað 1000 bíla sem fyrirhugað er að afgreiða á fjórum árum eða 250 bíla á ári. Leikur ekki vafi á að þessir bílar munu vekja mikla athygli hér á landi enda um tækniundur að ræða.
