Viðræður við IDEO í Munchen


Málin rædd með þekktum hönnuðum.
Nýlega fóru aðilar frá NLE til hönnunarfyrirtækisins IDEO í  Munchen í Þýskalandi. Var þessi fundur framhald af viðræðum fyrirtækjanna og tilgangur heimsóknarinnar að skoða aðkomu IDEO að hönnun verkefna NLE. Verður spennandi að sjá hvernig þessi samvinna mun þróast en IDEO er eitt þekktasta hönnunarfyrirtæki heims með yfir 500 starfsmenn í 8 skrifstofum í fjórum löndum. IDEO hefur komið að óteljandi verkefnum undanfarin þrjátíu ár og viðskiptavinir stofunnar eru fjöldinn allur af stærstu fyrirtækjum heimsins. Það væri mikill fengur að slíku samstarfi tilgangurinn m.a. sá að koma á heilstæðri hönnun á rafbílavæðingu Íslands með útflutning slíkra kerfa í huga til annarra landa. 
10.12.2009