Heimsókn IDEO

 
Ánægður en þreyttur hópur eftir vel heppnaða vinnu.

 
Hugmyndir festar á blað og konsept fæðist

 
Fyrri dagurinn með góðu aðstoðarfólki

 
Paul Bennett & Pascal Soboll

_____________________________________________________________________________________

Í byrjun febrúar kom hópur hönnuða frá hinu heimsþekkta hönnunarfyrirtæki IDEO í vinnuferð til NLE. Tilgangur þessarar vinnuferðar var að leggja drögin að mögulegu samstarfi NLE og IDEO um hönnun Plögg kerfisins fyrir rafbíla. Möguleiki er á að IDEO verði fengið til að sjá um hönnun viðmóts fyrir notendur kerfisins ásamt útliti þeirra rafpósta sem NLE mun framleiða fyrir kerfið. IDEO hefur gríðarlega reynslu af hverskonar hönnun og mætti þar nefna músina fyrir bæði Microsoft og Apple. Eins er viðmótið, mælar og skjámyndir í mælaborði Toyota Prius hönnuð af IDEO svo eitthvað sé nefnt. NLE lítur á það sem mikinn heiður að IDEO skuli skoða mögulegt samstarf með sprotafyrirtæki eins og NLE, en geta má þess að viðskiptavinir IDEO eru aðalega Fortune 500 fyrirtæki eins og Nokia, AT&T, Pepsi-Cola og Nike svo einhver séu nefnd.
8.2.2010