
Talið frá vinstri Nancy Stanley AMP, JD Stanley MD AMP, Jerry Chellini AMP, Thaddeus Bort AMP, Gísli Gíslason CEO NLE, Luis E. Arreaga Ambassador, Joe Paresi CEO AMP, Sturla Sighvatsson MD NLE, Gudjon Hugberg Björnsson CTO NLE, Sighvatur Lárusson MD EVEN, Meredith Rubin E/C Officer US Ambassy.
Í tengslum við Evrópufrumsýningu á rafjeppum frá AMP Electric Vehicles eru staddir hér á landi fulltrúar fyrirtækisins og fleiri eru væntanlegir síðar í vikunni. Sendiherra Bandaríkjana Luis E. Arreaga bauð forráðamönnum NLE og AMP í stutta heimsókn í Sendiráð Bandaríkjana við Laufásveg. Þar voru framtíðaráform fyrirtækjanna reyfuð og skoðaðir möguleikar sendiráðsins á að nýta sér þá tækni sem fyrirtækin í sameiningu eru að hefja markaðssetningu á hér á landi og með hvaða hætti sendiráðið gæti veitt þjóðarátaki um rafbílavæðingu Íslands lið. Það skemmtilega við þetta er að Luis E. Arreaga sendiherra hefur prófað einn af rafbílunum nú þegar og var að vonum mjög ánægður með hann.
Eins og flestir vita sem fylgjast með þróun rafbíla kemur stór hluti af allri þróun tækninýjunga varðandi rafbíla frá Bandaríkjunum, svo það er eðlilegt að leita til fyrirtækja eins og AMP um lausnir.