Talið frá vinstri, Sighvatur Lárusson, Andrés Arnalds, Bergljót Arnalds, Gísli Gíslason, Páll Ásgeir Davíðsson, Dr. Zafar Adeel, Sturla Sighvatsson og Dagfinnur Sveinbjörnsson.
| Í vikunni kom góður gestur í heimsókn en það var Dr. Zafar Adeel, forstöðumaður UN Water. Um er að ræða samtök 28 stofnana Sameinuðu þjóðanna er fást við málefni er tengjast vatni (umhverfismál, þróunarmál, fæðuöryggi, réttindi kvenna og barna osfrv.) Hann er einnig forstöðumaður Institute for Water, Environment and Health við Háskóla Sameinuðu þjóðanna |
|

|
Dr Zafar Adeel hefur langa reynslu af ýmsu er varðar vatn og umhverfismál, þ.m.t vöktun og eftirlit með mengun vatns, stjórnun vatnsmála á þurkasvæðum, um lausnir og stefnumótun á sviði iðnaðar og umhverfisvandamála. Hann hefur einnig tekið þátt í þróun og uppbyggingu á alþjóðlegu tengslaneti sérfræðinga um vatn og vandamál tengd vatnsskorti.
Með honum var Andrés Arnalds fagmálastjóri hjá Landgræðslu ríkisins en hann er löngu landskunnur fyrir störf sín hjá Landgræðslunni og á alþjóðavettvangi.
Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna fyrir Dr. Zafar Adeel,
Vox Naturae verkefnið og leita eftir stuðningi UN Water við verkefnið. Einnig var leitað ráða með ýmis mál er snúa að því verkefni.
Fundurinn gekk vel og munum við sjá afrakstur hans á komandi vikum en verkefnið fellur vel að hugmyndafræði UN Water og annarra stofnana Sameinuðu þjóðanna sem við höfum einnig verið í sambandi við vegna þessa stóra verkefnis.
Vox Naturae verkefnið hófst með einfaldri hugmynd um stórkostlegan ljósagjörning Ljósalistamannsins
Gert Hof sem til stendur að halda á jökli hér á landi. Verkefnið hefur þróast og er ætlunin m.a. að halda í tengslum við ljósasúninguna tveggja daga alþjóðlega ráðstefnu hér á landi um hlýnun jarðar og vandamál sem tengjast vatnsbúskap jarðarinnar. Ráðstefnan verður haldin í Hörpu í september 2012.

Tesla Roadster skoðaður |

Kíkt undir húddið á rafbílnum |

Fyrsti túrinn á rafbíl |
Við nýttum tækifærið og buðum Dr. Zafar að prófa nýjustu útgáfu af
rafbílum sem NLE hefur hafið innflutning á og þótti honum mikið til um. Með notkun rafbíla hér á landi er hægt að minka CO2 mengun til muna í samgöngum, enda CO2 mengun talin vera mikill áhrifavaldur varðandi hlýnun jarðar.